Nærandi náttúra á Glerárdal
DAGS
Kl.
BROTTFÖR Kl.
10 frá Súlubílastæðinu
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services

Lýsing
15.–16. ágúst
Brottför kl. 10 frá Súlubílastæðinu.
Fararstjórn: Þuríður Helga Kristjánsdóttir jóga- og núvitundarkennari og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir orku- og umhverfisverkfræðingur með mikinn áhuga á vistspeki.
Í þessari ferð er áhersla á að dýpka tengsl okkar við náttúruna og sækja þangað næringu, styrk og ró. Útivist, slökun og samveru verður blandað við fræðslu og umræður um vistheimspeki og virðingu fyrir náttúrunni. Sameiginlegur kvöldmatur er á laugardag. Þátttakendur koma sjálfir með nesti fyrir gönguferðirnar, snarl og morgunmat fyrir sunnudaginn. Óskað er eftir því að þátttakendur beri allir eitthvað af sameiginlega matnum.
Vegalengd: 11 km hvor leið. Gönguhækkun: 400 m.
Dagskrá ferðarinnar:
1. d., laugardagur: Brottför frá Súlubílastæði kl. 10. Gengið inn í Lamba. Stoppað á völdum stöðum til að njóta og skoða sig um, borða nesti, skala og teygja. Þáatttakendur koma sér fyrir í Lamba. Sameiginlegur kvöldmatur. Um kvöldið er leidd slökum, yoga nidra.
2. d., summudagur: Leidd morgunhreyfing jóga og hugleiðsla úti við. Morgunmatur og kaffi. Samtal og fræðsla um vistheimspeki (deep ecology) endurgjöf og endurnýjun í náttúrunni. Loka hringur og umræður. Pakkað saman. Gengið til baka. Gert ráð fyrir að koma á bílastæðið um k. 17.
Verð: 16.500/19.500 kr. Innifalið: Gisting í eina nótt og fararstjórn. Sameiginlegur kvöldmatur greiðist sérstaklega. Fararstjórar sjá um að kaupa inn.
Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 5.000 í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka.
Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.
Búnaður
Lengri ferðir: Göngu- og skíðaferðir - 2 skór
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst., oftast utan slóða og /eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Í nokkurra daga ferð reynir oft meira á úthald hjá fólki en í dagsferðum.
Viðbót við grunn-búnaðarlista fyrir 2 skó. Sjá grunnlista hér.
ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf
Í lengri ferðir (1 - 4 dagar) þarf auk grunnbúnaðar:
Gönguskór sem henta aðstæðum og veita góðan stuðning
Bakpoki: Stærri bakpoki ef gengið er með allt á bakinu annars dagspoki. Bakpokinn þarf að vera með bakpokahlíf
Inniskór ef gist er í fjallaskálum
Svefnpoki (og lítill koddi)
Fatnaður sem bæta þarf við: Nærföt til skiptanna, sokkar, millilag og auka föt ef fólk blotnar
Lítið viðgerðasett (nál, tvinni, lítil skæri)
Nauðsynlegar snyrtivörur og eyrnatappa
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Matur og hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)
Kort, áttaviti, GPS tæki
Í vetrarferðir (göngu- eða skíðaferðum) þarf auk grunnbúnaðar:
Utanbrautarskíði með stálköntum (skinn á skíðin)
Hlífðargleraugu
Brodda og ísexi (ef leið liggur um brattlendi)
Hlýrri fatnað en að jafnaði í sumarferðum: Ullarnærföt, ullarhúfa, ullarvettlingar og vindhelt ysta lag (buxur, jakki og lúffur) eru nauðsynlegur búnaður
Orkumikið nesti og nóg að drekka (heitt og kalt í ílátum sem ekki frýs



